top of page

Á Staðarfelli er framundan uppbyggingarstarf bæði á húsakosti og nýtingu hans. Stefnt er að því að upphefja sögu staðarins og svæðisins með sjálfbærni, hvíld og ró í huga. Gera má ráð fyrir að framkvæmdir verði í nokkrum lotum og geti tekið tíma, enda verður vandað til verks.

20230625_103224.jpg

Það er tilvalið að skreppa í dagsferð að Staðarfelli en aksturinn tekur tæpar þrjár klukkustundir frá höfuðborgarsvæðinu. Einstök náttúrufegurð er á Fellsströnd og eru ferðalangar hvattir til að gefa sér tíma, finna góða gistingu í nærumhverfinu, keyra Söguhringinn (Fellsströnd, Klofning, Skarðsströnd) og njóta náttúrunnar, söguarflegðar, fjölbreytts dýralífs og þjónustu í nærsamfélaginu. 

Fréttir

Einstakar gönguleiðir og menningarverðmæti eru fyrir hendi í  Dölunum, sjá m.a.

https://www.west.is/is/stadur/ferdaleidir/velkomin-i-dali

https://is.nat.is/landshluti/vesturland/?sf_paged=5

20230625_103431.jpg
bottom of page